Fótumtroðin braut hefur myndast gegnum limgerði austan við leikskólann Hof yfir á skólalóð Laugarnesskóla. Göngu-tenging þarna á milli rofnaði fyrir nokkrum árum þegar hús svörtudeildar bættist við húsakost leikskólans. Þessa fjölfarnu braut þarf að bæta með myndarlegum hætti, taka einhver tré úr limgerðinu helluleggja eða malbika braut sem er fær fyrir gangandi og barnavagna.
Fólk þarf oft á tíðum að klofa þarna yfir drullu eða polla enda hefur þetta aldrei verið hannað sem göngubraut sem hún samt er.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation